Fallegur garður, minni fyrirhöfn
Grassláttur og slátturóbotar til leigu á Akureyri.


Leigumöguleikar
Leigðu réttan slátturóbot fyrir garðinn þinn
Við metum garðinn þinn og finnum vélina sem hentar stærð hans og lögun, sjáum um uppsetningu og viðhald allt sumarið. Þú sendir okkur upplýsingar um garðinn og færð tilboð sem hentar.

Önnur þjónusta
Fá grassláttLeyfðu okkur að sjá um sláttinn
Sláttur á um það bil tveggja vikna fresti yfir sumarið, með snyrtilegri umgjörð eftir hvert skipti. Sveigjanlegt fyrirkomulag sem lagar sig að þörfum garðsins þíns.

Um okkur
Um Orfa
Orfa var stofnað af Gunnari Þór Sigurðarsyni, 18 ára frumkvöðli sem hefur starfað undir nafninu Gunnsi Garðsláttur síðan 2022.
Kynnast okkur beturUmsagnir
Það sem viðskiptavinir segja
5 af 5 stjörnum
„Ég hef undanfarin ár notið þjónustu hjá honum Gunnari, hann hefur séð um að slá garðinn hjá mér og ég gæti hreinlega ekki verið sáttari, þjónustulundin hjá honum er eitthvað annað frábær. Hann skilar góðu verki og frágangur hjá honum er til fyrirmyndar. Ég mæli 100% með honum til allra verka, ekki hika við að leita til hans. Topp maður með topp þjónustu.“
5 af 5 stjörnum
„Ég mæli svo sannarlega með Gunnari. Vinnur vel og ég er mjög ánægð með störf hans.“
Tilbúin/n að sleppa við sláttinn?
Sendu okkur fyrirspurn og við finnum réttu lausnina fyrir þinn garð, hvort sem það er slátturóbot á leigu eða grassláttur.
